Kór Öldutúnsskóla

Follow this artist

About this artist

Icelandic.
Kór Öldutúnsskóla var stofnaður 22. nóvember 1965 undir stjórn Egils R. Friðleifssonar. Markmiðið með stofnun hans var að gefa nemendum Öldutúnsskóla kost á raddþjálfun og þroska músíkalska hæfileika kórfélaga. Ári síðar kom kórin fyrst fram í útvarpi og 1967 kom hann einnig fram í sjónvarpi. Kórnum óx ásmegin og árið 1968 var hann valin til þátttöku á norræna barnakóramótinu, sem þá fór fram í Helsinki í Finnlandi og á næstu áratugum fór kórinn margoft utan og söng. Efnisskrá kórsins hefur frá fyrstu tíð varið fjölbreytt og þar mátt finna lög allt frá 16. öld til okkar daga, þó hefur ávalt verið lögð áhersla á íslenska tónlist og hún snar þáttur í starfi kórsins, enda hafa þó nokkur tónskáld leitast við að semja fyrir kórinn sérstaklega. Í tilefni 30 ára afmæli kórsins árið 1995 var ráðist í gerð plötunnar Dagur er risinn. Hljóðritun á efni þeirrar plötu fór fram í þrennu lagi; Fyrstu sex lög hennar voru hljóðrituð 19. september 1995 í Víðistaðakirkju, lög 7-12 voru hljóðrituð í Langholtskirkju 3 mars 1989 en lög 13-18 í Garðakirkju 11. september 1978.

Bárður Örn Bárðarson